14.03.2010 21:35:33 / Berglind
Ljómandi góð helgi að baki. Kristín litla systir mín hringdi á föstudaginn og sagði mér að hún væri að koma í heimsókn, bara gaman. Hún kom seinnipartinn á föstudag og reyndar Emil hundurinn þeirra Hólmar og Guðrúnar.
Við Kristín höfðum það nú bara rólegt á föstudagskvöld, mynd og popp bara. Svo á laugardag fórum við í sund og fengum okkur hádegismat í Geira bakarí. Óskar fór með innleggsnótuna sína sem hann vann í bingó og bauð okkur út að borða eftir sundferðina. LJómandi gott alveg.
Ég ætlaði að fara í nytjamarkaðinn í Brákarey en gleymdi því, djö... mig vantar nefninlega tilfinnanlega flöskur í sodastream tækið mitt. Það er ekki lengur hægt að kaupa flöskur sem passa í mitt tæki í búðum því nýju tækin eru með öðruvísi stút.
Í gærkvöldi grilluðum við rosa gott og gerðum geggjaðann ávaxta eftirrétt, heitann með ís. NAMMM við átum yfir okkur held ég, öll... svo flatmöguðum við bara í sófanum langt fram á kvöld, Jakob og Íris komu líka svo við vorum þrjú af sex systkinum saman eina kvöldstund. HIttumst ekki svo oft mörg saman, erum dreifð um allt.
Sunnudagur fór í gönguferð í góða veðrinu, skrítið veður, það var alveg þokkalega heitt úti og svo rigndi bara í logni. Svo var bakað og Hólmar og Guðrún og auðvitað litla skottið hún Hanna Valdís komu. Svo við vorum fjögur af sex í dag í kaffiboðinu mínu hehe.. kósý
»
09.03.2010 13:13:17 / Berglind
Voðalega var ég væmin í síðasta bloggi, það var bara eitthvað svo sérstaklega gott að koma norður í þetta skiptið. Enda langt síðan síðast og þessi vetur hefur verið langur og leiðinlegur.
En nú er vor í lofti og ég er búin að ákveð að nú ætla ég að ná mér á strik. Reyna að finna upp á einhverju skemmtilegu að gera og njóta þess að vera til.
Ég á t.d. boðsmiða í leikhús, ég ætla í bíó, ég ætla í gönguferðir, á rúntinn, hitta fólk, bjóða fólki í mat og svona eitthvað spennandi. Og það er bannað að sitja bara og láta tímann líða og gera ekki neitt.
Ég er búin að ákveð að fara norður um páskana. Þá ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt, fyrir utan auðvitað að hitta skemmtilegt fólk, en mig langar á skauta, fá mér ís í Holtsseli og svo á ég eftir að finna upp á einhverju fleiru. jú auðvita mæta í fermingarveislu og hitta fullt af ættingjum sem maður hittir bara við svona tækifæri.
Svo verð ég víst þrítug í næsta mánuði, gamla, gamla. Ég ætla að halda upp á það, ætli ég leigi ekki bara barinn og hafi þema partý... hverjir ætla að mæta?
Jæja læt þetta duga í bili, njótið góða veðursins og ekki sýst hækkandi sólar
»
06.03.2010 21:18:54 / Berglind
Er fyrir norðan! Elska það, ohh það er svo langt síðan ég fór seinast norður. Það er svo gott að komast aðeins norður. Fór á Akureyri og fékk mér djúpsteikta pylsu með frönskum og osti... geðveikt, það gerist ekki mikið meira norðlensk.
Sund á Þelamörk í dag, geðveikt reyndar
Ég held ég verði bara að finna mér lítið sætt kot í Eyjafirði
»
25.02.2010 15:14:45 / Berglind
Í gærkvöldi var ég á fundi í Borgarnesi um fótboltamál. Ég er sokkermomm dauðans sko. En allavega fyrsti svona fundurinn sem ég fer á og ég spurði fullt og fékk fullt af ganglegum upplýsingum. Planið er flott. Stubbarnir fara á amk fimm mót í sumar. Tvö KSÍ mót sem verða hérna í nágrenninu, eitt í maí og annað júní eða júlí. Svo er mót á Akranesi í júní, helgarmót, gist á skaganum til að fá allt fjörið beint í æð, kvöldvaka og læti bara, Nikulásarmót í Ólafsfirði í júlí, eina svona alvöru ferðalagið og svo er Skallagrímsmót í ágúst. Bara fjör sem sagt! Stubbarnir æfa náttúrulega í Borgarnesi og við keyrum nokkrar frá Hvanneyri og Skorradal á æfingar með Skallagrími. Þeir koma svo auðvitað til með að stunda sínar æfingar líka með Umf Íslendingi hérna á Hvanneyri í sumar. Svo kom auðvitað hugmynd um að bjóða Borgarnes guttunum á æfingu hingað uppeftir, það væri gaman fyrir alla, bæði Hvanneyringana að bjóða hinum til sín og hina að sjá hvaðan Hvanneyringarnir koma. Þetta er bara flott og verður örugglega skemmtilegt starf, ég ætla allavega með það hugarfar af stað því þetta kemur til með að vera stór hluti af lífi okkar næstu árin... fótbolti og aftur fótbolti.
En það var heppilegt að plana sumarið í gærkvöldi og skellur á vetur í nótt. Maður var nú eiginlega bara farin að halda að það kæmi enginn vetur hérna. Reyndar er alveg búið að koma gott frost og kuldi en snjórinn hefur lítið sýnt sig og aldrei verið hægt að draga fram gönguskíðin til brúks. Þegar ég vakti Óskar Óðinn í morgun og dró frá glugganum þá kíkti hann út, vatt upp á trínið og snéri sér á hinahliðina og sagði ,,ég ætla ekkert í skólann í dag". Bara svona eins og ekkert væri. Honum leist ekkert á þetta veður sem var úti, enda bara ágætis hríð og hellingssnjór kominn. En við drifum okkur á fætur, bíllinn í skúrnum svo hann var heitur og góður. En svo bara hefur veðrið versnað, það hefur hvesst meira og það er eiginlega bara ekta norðlensk stórhríð hérna núna. Ég ætlaði norður í dag en ég frestaði því, nenni ekki að berjast í þessu veðri, kannski ellimerki, veit ekki!! Siggi Stormur sagði fólki á suðurvestur og vesturlandi að halda sig bara heima í dag. Börnin í Varmalandsskóla voru keyrð heim áðan, aðeins fyrr en venjulega bara svo þau kæmust örugglega heim. Húsið hérna þar sem ég vinn er fullt af fólki sem býr ekki á Hvanneyri og það hefur verið að týnast í burtu núna frá hádegi, koma sér heim bara. Svo var hringt úr skólanum hans Óskars, bara svona til að athuga hvort við myndum ekki örugglega sækja hann.
Jæja ætla að fara að hætta þessu, njótið veðursins, hvernig sem það er. Ég sé fram á kósý kvöld með kertaljós og horfa út í storminn ohh það er svo kósý
»
23.02.2010 15:45:56 / Berglind
Langaði bara að monta mig aðeins og deila með ykkur góðu gengi.
En þannig var það í dag að við foreldrarnir á heimilinu mættum í viðtal, svokallað foreldraviðtal. Kennarinn hans Óskars Óðins tók á móti okkur og fór yfir starfið, hvernig honum gengi bæði í náminu og félagslega.
Helstu niðurstöður eru þær að honum gengur mjög vel bæði í náminu og félagslega. Hann er mjög duglegur að lesa og skoraði hátt í læsiskönnun sem var lögð fyrir þau, kláraði það villulaust. Hann er líka komin uppfyrir viðmiðunarmörk við útskrift úr 1.bekk í lestri svo það gengur greinilega vel að lesa. Stærðfræðin er samt aðalfagið, þar er hann í essinu sínu. Hann sér lífið í tölum og allt hefur rökræna útskýringu. Hann stútar öllum stærðfræðiverkefnum sem fyrir hann eru lögð eins og ekkert sé.
Honum gengur vel félagslega, hann á marga vini og er öruggur með sig.
Hann er samt ekki duglegur að borða og vill helst sleppa morgunmat í skólanum. Hann mætti líka vera áhugasamari í myndmennt og textílmennt en er samt alveg að standa sig mjög vel þar líka eins og annarstaðar.
Það sem við þurfum núna að gera með þetta sem foreldrar er þá væntanlega að hvetja hann áfram, hrósa fyrir það sem gott er. Að hann sjái t.d. hvernig lestrarátkið í febrúar hefur skilað honum framförum. og að það er hægt að ná svona framförum í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur ef maður bara vinnur vel að því. Ekkert gerist af því bara og það skilur hann vel, því í stærðfræði gerist ekkert af því bara!!
Við þurfum líka að halda áfram að vera dugleg að svara spurningum, ef hann hefur þroska til að spyrja hefur hann líka þroska til að fá svar þó svo að það sé ekki endilega í aðalnámsskrá 1. bekkjar. Hann hefur t.d. verið að dúlla sér í margföldun hérna heima, bara af því honum langaði að læra margföldun. Hún er líka svo skemmtileg, þetta er bara leikur að tölum ekki satt.
Við þurfum líka að vera gott fordæmi, ef hann er svona sterkur félagslega inni í sínum bekk verður hann að fara vel með það. Hann verður að koma vel fram við aðra og vera kurteis bæði við fullorðna og börn. En ég held að hann sé góður að eðlisfari svo það ætti ekkert að vera erfitt.
Ég vona að þið látið mont-bloggið mitt ekkert fara í taugarnar á ykkur og kíkið við aftur seinna. Ég veit vel að öllum foreldrum finnst sitt barn best og æðislegast, en þannig á það líka að vera.
»
20.02.2010 15:37:28 / Berglind
Helgarfrí... ég elska helgarfrí.
Undanfarnar vikur eru búnar að einkennast af miklu róti. Margir fundir út um allar trissur og þvælingur á manni. Það er leiðinlega slítandi til lengdar. En núna virðist það ætla að róast aðeins. Það er ágætt líka.
Í gær fór ég á fræðaþingið og hlustaði á nokkur erindi. Það var alveg ágætt en æ mér finnst fræðaþingið orðið frekar útþynnt... Kannski er ég bara leiðinleg en mér finnst kominn tími til að stokka þetta aðeins upp og breyta til aftur. Þetta er bara ekki alveg að gera sig finnst mér eins og þetta er. Kannski líka að við erum alltaf með ráðunautafundina á undan svo það er törn hjá manni á undan og maður hefur þurft að ýta öðru frá og þá kannski hefur maður líka bara annað að gera en að sitja bara og hlusta á mis góð erindi.
JÆja nóg af leiðindarausi um fræðaþing!
Í gær fór ég líka á bókamarkaðinn í Perlunni. Þetta var fyrsti dagurinn og það var rosa mikið af fólki. Ég keypti góðann bunka af bókum svo núna hef ég nóg að lesa fram að næsta bókamarkaði hehe. Þetta voru reifara kaup, ég keypti líklega um 8 bækur eða eitthvað. Sú dýrasta var á 990 krónur en sú ódýrasta á 340 kr frekar en 360! Man ekki alveg. Ég er ennþá að vinna upp mikið lestrarleysi síðan úr framhalds og háskóla (lét skólabækurnar duga þá enda frekar mikið hæglæs í minni lesblindu eða hvað þetta er kallað). Svo núna er ég með góða uppsafnaða þörf og get því líka keypt mér gamlar bækur sem eru einmitt ódýrari. Ég þarf samt að fara aftur, ég komst nefninlega ekkert að handbókaborðunum því þar var gríðarlegt magn fólks og svo langar mig að fara með Óskar Óðinn og leyfa honum að missa sig aðeins í bókakaupum. Því það er gríðarlegt magn barnabóka þarna líka. Hann er líka orðin svo duglegur að lesa að hann gæti valið sér eitthvað sem hann langar að lesa sjálfum. Elska bókamarkaðinn!!
Annars er löng helgi hjá okkur, það er nefninlega starfsdagur í grunnskólanum á mánudaginn og foreldraviðtöl á þriðjudaginn. ÉG ætla að vinna heima á mánudaginn og vera hérna með stubbinn minn og svo kannski verður Sigtryggur eitthvað heima á þriðjudaginn. Veit ekki alveg, erum ekki alveg búin að skipuleggja þetta. En það er ágætt að vera í vinnu þar sem maður getur bara unnið heima ef þess þarf svona stund og stund. Óskar Óðinn er líka orðin svo stór að það er ekkert mál að vinna eitthvað þó hann sé heima. En svo er foreldraviðtalið á þriðjudaginn og það verður spennandi að sjá hvernig hann er að standa sig í skólanum. Hann er reyndar mjög duglegur hérna heima, hann les eins og herforingi og hefur farið mjög mikið fram í lestrinum. Hann hefur gaman af tölum og stærðfræði en hefur ekki mikið verið að reikna heima undanfarið enda eru þau í lestrarátaki núna svo það er mest fókus á það núna. En þetta verður bara spennandi.
Jæja nóg af okkur í bili, við höldum bara okkar striki. Vinna, skóli, hestar, fótbolti og prjón...
Já gleymdi að segja frá því að Óskar Óðinn skellti sér á bak núna um daginn með pabba sínum. Þeir fór tveir í smá reiðtúr, Óskar á Svölu og Tryggvi á Storm. Það gekk rosalega vel og allir ánægðir. En svo var Svala okkar eitthvað slöpp núna seinustu daga, með hita og frekar döpur. EN svo virðist hún vera að hressast núna svo Óskar getur farið að prófa hana aftur fljótlega. Andvari litli er alveg búin að ná sér af hrossasóttinni og finnst bara gaman að láta rassamæla sig hehehhehe hann er náttúrulega bara skrítinn þessi hestur. Vonandi verður hann jafn góður og hann er skemmtilegur.
Ég nenni ekkert að fara á hestbak með þeim, kannski þegar það verður aðeins minna kalt!!
EN ég prjóna bara eins og ég eigi lífið að leysa og pilsið er komið langt á veg en peysan hennar mömmu líka!! allt að gerast
lifið heil kæru lesendur
»
14.02.2010 19:10:27 / Berglind
Hef svo sem ekkert merkilegt að segja, bara blaðra eitthvað um mig og mína. Það er kannski ekkert gáfulegt en langaði bara að deila því svona til gamans, kannski aðalega fyrir þá sem ég er löt að heimsækja. Guð hvað ég er orðin löt við að fara norður.... ég skil ekkert í þessu, einu sinni fór ég í hverjum mánuði norður. Núna bara líða oft margir mánuðir á milli ferða.
Þorrinn er núna, eins og þið vitið auðvitað!! Ég afrekaði að fara á tvö þorrablót, eitt hérna í Brún og svo annað vinnu þorrablót á Sögu. Það var núna á föstudaginn. Það var alveg ágætt, rólegt en fínt. Fannst reyndar skrítið að maturinn kláraðist... En dansaði slatta og hafði bara gaman. Þessi Þorri hefur nú ekki verið neitt sérstaklega erfiður, það er búið að vera ótrúlegt veður. Reyndar kom kuldatímabil, þar sem það var bara þónokkuð kalt. En svo bara kom vorið aftur og núna í seinustu viku hefur náttúrulega bara verið fáránlegt veður. Sólin farin að láta sjá sig hérna og svo þessi líka hiti. Þetta styttir veturinn náttúrulega alveg rosalega mikið, en það er nú aldrei að vita hvernig restin verður. Það getur brugðið til beggja vona og ekkert fast í hendi þegar veðurfar á Íslandi er annars vegar. Eins og núna 11. febrúar var ég að keyra frá Reykjavík hingað upp á Hvanneyri eftir fund. Það var ljómandi gott veður ca 5°C hiti og andvari. Þá kom frétt í útvarpið sem sagði frá því að þennann dag árið 2000 var svo brjálað veður á suðvesturlandi að björgunasveitir og lögregla stóðu í ströngu við umferðaaðstoð. Það var stórhríð og bara brjálað veður, bílar fastir út um allt og ves bara. Það er sko alldeilis ekki núna. En hvað veit maður, núna er víst stórhríð fyrir norðan, svo það er ekki langt í veturinn. Ég væri reyndar alveg til í smá vetur, smá snjó svo það væri hægt að fara á gönguskíðin og svona gaman. Ætli við skreppum ekki bara norður um páskana með skíðinn okkar svo við getum notað þau eitthvað. Eða kannski bara til Noregs... hehe bjartsýn!!
Annars var ég með bollukaffi í dag, bakaði spelt vatnsdeigsbollur því mágkona mín kæra getur ekki borðað hveiti. Það var bara ljómandi gott að fá spelt bollur, bragðast mjög vel og maður fær minna samviskubit.... en ég var líka með hveiti vatnsdeigsbollur og gerbollur auðvitað. Ég get nú ekki haft bollukaffi og engar gerbollur... ummm ég elska gerbollur.....
Ég var í ömurlegu skapi í gær, eyddi heilum laugardegi í vont skap og pirring, þetta á náttúrulega að vera bannað, vantar þess vegna einn dag í helgina hjá mér, sóaði honum í vont skap, hræðilegt. En allavega ég hef smitað þessu yfir í Sigtrygg minn og hann verið eitthvað utan við sig þegar hann gaf í gær því Andvari okkar fékk hrossasótt. (jæja það er nú kannski ekki alveg ástæðan!!!) En dýralæknir og læti núna seinnipartinn. Karlgreyið, kominn með bullandi hita og ves.
Ég er að missa mig í prjónaskapnum, prjóna og prjóna, ný búin með peysu á mig, er að gera peysu á mömmu og reyndar líka pils á mig því ég kláraði lopann í peysuna hennar mömmu og gat ekki hætt svo ég byrjaði á nýju þangað til ég var komin með meiri lopa!!! sniðugt....
Hreyfing þokkaleg, mætti vera betri, en BÍ er í lífshlaupinu og ég ætla að nota það til að koma mér aftur af stað. Ég er alltaf rosa dugleg og hendist af stað, fer í nokkra daga eða vikur og svo kemur jafn löng pása þangað til ég ríf mig upp aftur!! pirrandi maður. En ég er að vona að þetta aðhald sem lífshlaupið er haldi mér við efnið í góða stund og þá er nú aldeilis farin að hækka sól og annað sem dregur mann út. ipod er algjör snilld og ég skil bara ekkert í því hvernig ég fór út án hans hérna áður!!!
Jæja nóg af gúrkufréttum héðan....
lifið heil
»
27.01.2010 09:21:48 / Berglind
Blak í gær, geggjuð æfing, vá hvað það var tekið á. Reyndar var ég ekki alveg með úthald í þetta. Ég var frekar dösuð bara í seinasta leikunum sem við spiluðum og kannski ekki alveg upp á mitt besta. En svona er þetta eftir llllaaaannnnggggtttt jólafrí. jamm þetta var bara æfing númer 2 eftir jólafrí og hin var fyrir tveim vikum. Tókum nefninlega frí þegar landsliðsleikurinn var á þriðjudegi á blak tíma. Við tókum samt ekkert frí í gær þegar Noregur var að spila við Danmörku og Evy norðmaðurinn okkar mætti meira að segja líka. Svona er hún hörð í blakinu. En Solla þjösnaði okkur út með meiriháttar æfingum, vá hvað við höfum gott af svona æfingum, ekki bara spila út í gegn.
Annars er ég ljómandi ánægð með handboltaliðið íslenska, þeir eru aldeilis að standa sig vel. Það er svo skondið til þess að hugsa hvað við eigum í raun gott handboltalið, eins og það eru nú tiltölulega fáir sem æfa handabolta á Íslandi, amk miðað við t.d. fótbolta. Og hvað það myndast ótrúleg stemmning í kringum handboltann. Frábært bara. Nú verður bara spennandi að sjá hvernig gengur á móti Norðmönnum, þeir eru með ágætislið og áttu skilið að vinna danina í gær. En þetta verður alveg pottþétt hörku leikur því bæði lið eru að berjast um sæti áfram og þá er bara að duga eða drepast.
»
25.01.2010 14:15:45 / Berglind
Ég hef í raun ekkert merkilegt að segja, en mig langaði bara að blogga. Ég er eitthvað svo andlaus og langaði bara að athuga hvort ég fengi ekki andann yfir mig með því að skrifa eitthvað gáfulegt á bloggið mitt.
Akkúrat núna á ég að vera að skrifa starfsskýrslu fyrir árið 2009, ég er komin með góða punkta á blað en þarf andann yfir mig til þess að koma þessu í góðann heilsteyptann texta.
Það kemur pottþétt þegar ég er búin að rausa hérna einhverja þvælu.
Annars er ég frekar þreytt bara, ég er líka með vöðvabólgu. Hef greininlega sofið eitthvað asanlega, litli stubburinn minn skreið líka uppí frekar snemma í nótt og það er nú ekki alveg það besta í heimi að hafa hann á milli. Ég sef venjulega frekar stíf og í óþægilegum stellingum þegar hann kemur og kúrir hjá okkur og vakna þegar ég er orðin föst í einhverri stellingu.
Það er líka óþolandi að vera með svona vöðvabólgu, þá get ég ekkert prjónað, það gerir vöðvabólguna bara verri.
Hvað er annars að frétta? seinasta vika var frekar hefðbundin vinnu vika, símafundir, aðrir fundir og ves, Fredagsöl er reyndar snilld!!
Handbolti auðvitað, ég fór ekki bjartsýn af stað í þetta mót... Svo þrjú stig áfram er framar mínum vonum. Sem er auðvitað bara gott. Típískt samt fyrir íslenska liðið að halda okkur í þvílíkri taugaspennu fram á síðustu stundu. En það er líka sjarminn við þetta allt saman. Leiðinleg tímasetning á leikjum vikunnar, ég sé fram á að þurfa að taka vinnuna með mér heim þessa daga og gera smá hlé á vinnudeginum rétt á meðan leikirnir eru.
Helgin var góð, skellti mér í verslunarferð á skagann, eða við Óskar skelltum okkur saman. Það var ljómandi góð ferð. Ég keypti mér kápu og peysu á útsölunni þar sem ég ætlaði að kaupa mér kjól, en svona er þetta bara maður finnur bara eitthvað annað lífsnauðsynlegt. Svo keyptum við blakskó á mig og legghlífar og vatnsbrúsa fyrir Óskar Óðinn í íþróttabúðinni og svo sitthvað fleira, já ljós í herbergið hans Óskars og glös og allskonar. Óskar Óðinn skrapp svo með Írisi og Jakobi upp í Húsafell í bústaðinn og svo gisti hann hjá þeim því við skötuhjúin skelltum okkur á þorrablót.
Við hittumst nokkur fyrir blót heima hjá okkur og þar var boðið upp á rabbabaravín sem var algjört salgæti og svo fengum við okkur líka Mojito sem klikkar aldrei. Þorrablótið var bara svona lala, maturinn var reyndar algjör snilld, ég át á mig gat. Skemmtiatriðin voru ágæt nema mér fannst veislustjórinn ekki alveg að gera sig með eintóma neðanmittisbrandara. En því miður var hljómsveitin alls ekki nógu góð, það vantaði allann kraft í hana og maður danglaði bara á gólfinu, fínt fyrir paradans, en það má ekki vera þannig heilt kvöld. En svona er þetta misjafnt og þessar hljómsveitir oft svo mikið happdrætti!!
Seinasta vika janúarmánaðar er hafin, ótrúlegt hvað þetta líður, janúar sem manni finnst oft svo langur og leiðinlegur, febrúar verður fljótur að líða og þá fer bara að styttast í páska hehehehe
»
18.01.2010 13:11:06 / Berglind
Helgin sem leið var ljómandi góð. Mamma, Baldur og stubbarnir litlu komu í heimsókn. Þau komu um kvölmat á föstudag og þá vorum við aftur með pitsuveislu, annar í afmæli. Á laugardaginn fórum við í sund í Borgarnes og vesenuðumst aðeins þar. Elduðum svo rosalelgan kvöldmat. Þá var hreindýr á boðstólnum og hestur líka reyndar. Við gerðum geggjða meðlæti og sósan hennar mömmu var algjört nammi, ég er ekki mikil sósumanneskja en vá hvað þessi sósa var góð. Á sunnudag þruftu þau að leggja svona frekar tímanlega af stað því þau þurftu á þorrablótsnefndarfund klukkan sex fyrir norðan.
Ég notaði þessi helgi sem sagt mest til þess að hafa það notalegt með mömmu og co. Enda var það mjög gott, Jakob og Íris voru líka þónokkuð með okkur, enda er nauðsynlegt að nýta svona ferðir vel þar sem við Jakob búum núna bæði á sama stað. Sem hefur bara ekki gerst síðan við bjuggum bæði heima hjá mömmu.
En ég notaði helgina líka til þess að prjóna, ég prjónað heil ósköp um helgina, ég er að prjóna á mig peysu og get ekki beðið eftir að klára hana og prófa. En svo þegar þau voru farin var svo ljómandi gott veður að ég ákvað að skella mér út að skokka. Ég hef verið að fara undanfarið út í stafagöngu, enda hentar hún vel í hvernig veðri sem er. En núna fannst mér tími til komin að fara að skokka aftur, enda búin að hlaða tónlist í ipodinn og til í tuskið. Það kom mér eiginlega bara á óvart hvað ég gat skokkað eftir svona langt skokk hlé, en ég var líka þónokkuð þreytt og lúin á eftir en það er bara geggjað. Núna ætla ég að halda þessu við , fara að hlaupa reglulega og ná mér í gott form.
»
15.01.2010 11:08:20 / Berglind
Í gær 14. janúar átti frumburður minn og einkabarn afmæli. Þá voru nákvæmlega sjö ár liðin frá því ég ól hann í þennann heim. Það er alveg merkilegt hvað svona lífsreynsla situr föst í huga manns og ég get sagt nákvæmlega frá öllu sem gerðist þennan dag, ég man hann svo vel. Alveg frá því ég vaknaði um morguninn og fór í sturtu þangað til ég var að reyna að sofa fyrstu nóttina sem móðir. Ég man svo vel þegar mamma og Tryggvi voru komin inn á FSA, þegar verið var að mænudeifa mig, í aðgerðinni sjálfri man ég meira að segja hvað fólkið talaði, læknar og hjúkrunarfólk. Þetta var yndislegur dagur, eintóm hamingja og engir verkir. Ég fann ekkert fyrir deifingunni eða þegar hún var að fara, ég fann ekkert fyrir skurðinum og gat vippað mér framúr strax um kvöldið. Ég fór í sturtu daginn eftir og þetta truflaði mig akkúrat ekki neitt. Ég fíla keisara!!!
Litli stubburinn var líka bestu verðlaun sem ég hefði geta hugsað mér, þvílíkt yndislegt barn. Hann fæddist með appelsínugult hár en það breyttist strax á fyrsta degi og hefur verið snjóhvítt síðan. Litli stubburinn minn sem nennti ekki að sjúga brjóstið en þrjóska mamman gaf sig ekki og gerði hann feitan og pattaralegann á móðurmjólkinni. Hann var svo þægilegt ungabarn, hann svaf á nóttunni (eftir að við breyttum rúminu hans og hann fékk bakflæðislyfin sín) hann svar reyndar ekkert mikið á daginn en var ljómandi þægilegur og rólegur. Ég held að kunni betur að meta það hvað hann var þægilegt barn ef ég eignast annað. Ég náttúrulega kunni ekkert að meta það þarna, ég var bara stressuð yfir því að hann væri of rólegur, eða of hljóðlátur. Svona er maður geðveikur!!! Fóðrunin gekk ekki jafn vel eftir að hann hætti á brjósti, ég veiktist og drakk úr mér eitthvað sull en svo náttúrulega vildi hann það ekkert og ég hætti framleiðslu í þessum veikindum. Eftir það hefur hann átt erfitt með að nýta fæðuna. Við söfnuðum kúk reglulega heilan vetur, fórum með hann til allskonar sérfræðinga, í speglanir og sýnatökur, á endanum voru send út sýni til Englands, en allt kom fyrir ekki, þau höfðu ekki hugmynd um af hverju hann melti ekki matinn og kúkaði bara súru. Hann var samt ekkert veikur, hann var bara léttur og lítill, hann var heldur ekkert órólegur bara mjög rólegur og þægilegur. Hann var reyndar mjög latur og lélegur að hætta á bleiju og ég vona að ég þurfi ekki að standa í svoleiðis stappi aftur. Ennþá í dag er hann ekki stressaður yfir því að pissa aðeins í buxurnar ef það er langt inn á klósett, eða ef hann bara nennir ekki á klósettið því hann er upptekin við annað. ELSKA ÞAÐ.
Núna er litla sílið mitt, ennþá lítil reyndar, en orðin sjö ára gamall. Hann er stuttur og grannur og ég þarf ennþá að passa að hann borði nóg og reglulega. Matur er nauðsyn ekki nautn í hans huga. En það er líka bara gott að vera lítill, þá ræður maður vel við líkamann sinn og mömmur geta vel tekið mann í fangið þó maður sér kominn í skóla. Mömmu knús er best í heimi.
En annars er þetta yndislegasta barn í heimi, það er ég alveg viss um, sorrý þið hin!! Hann er algjörlega akkúrat eins og ég vil hafa hann.
Í gær héldum við upp á sjö ára afmælið, hann bauð vinum sínum úr bekknum og þeim sem leika við hann og spila fótbolta með honum, en bara Hvanneyringum samt. Þetta var fótboltaþemapartý. Boðskortin með Fernando Torres, afmæliskaka með Torres, afmæliskaka sem fótbolti, diskar glös og servéttur með fótboltamyndum, allt um fótbolta og afmælisbarnið í liverpool gallanum sínum.
Geggjað partý og bara fjör
»
02.01.2010 18:24:16 / Berglind
Ákvað að taka saman eitt og annað sem á daga okkar hefur drifið seinasta árið.
Í janúar var staðan sú að ég var komin í vinnu hjá Bændasamtökum Íslands, það var hlutastarf á þeim tíma enda ég ennþá að berjast við mastersritgerðina mína. Óskar Óðinn var á leikskólanum Andabæ á deildinni Goðheimum, þar sem hann var mjög ánægður. Enda gott starf unnið á þeim leikskóla og frábært starfsfólk. Þá var hann mest að leika við Hafstein sem er jafngamall og síðar kom í ljós að þeir eru frændur. En við vissum ekkert um það í janúar. Sigtryggur var þá einnig byrjaður að vinna hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann var þá að fást við kennslu en einnig verkefnið Hross í hollri vist, sem fjallar um aðstöðu hesta, ekki hestamanna heldur hestanna sjálfra. En hann var einnig aðeins að fínpússa sína ritgerð sem var samt nánast tilbúin.
Á þessum dimmu vetrarmánuðum sett ég allt í botn, vann gríðarlega hart að ritgerðinni, fékk loksins allar niðurstöður efnagreininga og gat því farið að klára verkið. Ég sat mjög gjarnan úti á skrifstofu á kvöldin eftir að hafa komið Óskari í háttinn. Þetta skildi klárað og það fyrr en seinna. Þetta tímabil er nú í hálfgerðri móðu, þetta var tímabil þar sem ég bara vann og vann og reyndi að sinna drengnum mínum þess á milli.
Við skruppum norður í páskafríinu, en árið 2009 vorum við alls ekki dugleg að fara norður og hitta fjölskylduna okkar þar. Því miður! En svona er þetta bara stundum og kannski verðum við duglegri að fara norður á þessu ári. Páskafríið var ljómandi skemmtilegt, við lékum okkur mikið í snjónum og gátum meðal annars notað gönguskíðin okkar. Eftir páskana varð ég aðeins veik og þurfti á sjúkrahús nokkra daga. En ég harkaði það af mér eins og annað, enda þýðir ekkert annað. Annars myndi maður bara drepast í eymd og volæði.
Það tók mig svolítinn tíma að ná mér á strik en ég náði samt að klára ritgerðina mína og verja hana. Sigtryggur kláraði sína líka og varði. Svo við gátum verið með sameiginlega kynningu á verkefnunum. En það hefur aldrei verið gert áður við skólann að tveir kynna saman. En það hentaði okkur vel. Þetta var gert í maí og foreldrar og nokkur systkina okkar komu og hlustuðu á okkur rausa um eitthvað sem þau hafa nú kannski frekar takmarkaðan áhuga á. En þetta gekk mjög vel, við svöruðum spurningum prófdómara, leiðbeinenda og úr sal eins og ekkert væri og kláruðum þetta bæði með stórt bros á vör. Þvílíkur léttir maður lifandi. Þessum merka áfanga fögnuðum við svo saman með því að fá okkur gott að borða á Hraunsnefi, veitingastað sem ég mæli með.
Í lok maí var svo útskriftin sjálf. Við vorum þarna fjórir mastersnemar að útskrifast og um kvöldið héldum við Sigtryggur rosalegt útskriftarpartý með búningaþema. Það var mjög skemmtilegt og gaman hvað margir fögnuðum þessum áfanga með okkur. Takk kærlega fyrir það kæru vinir.
Óskar Óðinn útskrifaðist svo líka á þessu ári. En í júní útskrifaðist hann úr leikskólanum. Leikskólanum sem hann hafði verið í frá því hann var eins og hálfsárs, með reyndar eins árs pásu þegar við vorum í Noregi. En þessi leikskóli hefur kennt honum mjög margt og verið honum mjög mikilvægur. Við erum leikskólakennurunum sem hafa unnið með drengnum okkar afar þakklát enda eru þetta frábærar konur og ég leiðist aldrei á því að þakka þeim það frábæra starf sem mér finnst þær vinna á leikskólanum.
Eftir allar útskriftirnar tók við rosalega langt sumarfrí hjá okkur Óskari en aldeilis ekkert sumarfrí hjá honum Sigtryggi. Í sumar tók Sigtryggur nefninlega við nýju starfi, en það var starf bústjóra á Hvanneyri, eða yfirmanni búrekstrar, eða hvað þetta hét nú eiginlega. Hann hafði amk umsjón með fjósi, fjárhúsi, heyskap og öllu hinu sem þarf að hafa umsjón með á stóru búi eins og Hvanneyrarbúið er. Hann fór því beint í heyskap og var úti á túni í allt sumar. Það er sumarið hans í hnotskurn má segja. Jakob bróðir flutti til okkar í lok maí og fór að vinna á búinu líka, hann var á verkstæðinu og úti á túni með Sigtryggi líka. Þeir voru sem sagt saman úti á túni í sumar. En við Óskar Óðinn vorum saman að njóta sumarsins. Reyndum að hugsa um karlana okkar sem unnu svo mikið, en ferðuðumst líka svolítið tvö saman.
Það voru tvö ættarmót í sumar, annað í Skíðadal og hitt var í Varmahlíð þar sem Óskar Óðinn komst að því að Hafsteinn besti vinur hans er líka frændi hans. En langafi Óskars og langamma Hafsteins voru systkini. Ekkert rosaleg náskildir en nóg til þess að hittast á ættarmóti og það var töff. Því miður flutti Hafsteinn frá Hvanneyri í sumar, en mamma hans ákvað að söðla um og fara í skóla á Akureyri. Óskari fannst nú upplagt að við myndum líka flytja á Akureyri því þá værum við ekki bara nær Hafsteini heldur líka öllum hinum ættingjum okkar sem búa í Eyjafirði, sem eru nú frekar margir bara. En foreldrarnir létu nú ekki segjast og ætla að vera aðeins lengur á Hvanneyri.
En þar sem við kláruðum skólann fluttum við út af nemendagörðunum í sumar og yfir á almennann leigumarkað. Núna búum við í Drullustykkinu á Hvanneyri. Reyndar heitir gatan okkar mun fallegra nafni eða Sóltún, en hún er byggð á túni sem var kallað drullustykki þegar við fluttum fyrst á Hvanneyri, því þetta var mýrarfen sem var erfitt að heyja og eiga við. Svo það var nýtt undir mannabústaði og hér hefur byggst upp ágætis hverfi. Núna búum við í fjögurra herbergja íbúð með bílskúr, svo við hringlum, enda tvöfölduðum við næstum því fermetrafjöldann sem við höfum yfir að ráða. Eða fórum úr 70 fm2 í 130fm2.
Í lok ágúst skruppum við aðeins í ferðalag til Noregs. En það var í fyrsta skipti sem þeir feðgar komu út til Noregs eftir að við fluttum heim í desember 2007. Við heimsóttum Oddnýju vinkonu okkar en hún er reyndar flutt til Elverum, svo fórum við til Ås og hittum Siggu og Hauk sem voru bara ný flutt út. Það var gott að koma aftur í Skogveigen og ekki laust við að maður vildi bara flytja út aftur!! Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Strax eftir að við komum heim byrjaði Óskar Óðinn í Grunnskóla Borgarfjarðar. Hann er í fyrsta bekk ásamt öðrum sjö krökkum og kennarinn þeirra heitir Kolbrá. Skólagangan hefur farið mjög vel af stað, honum gengur vel að læra að lesa en stærðfræði á hug hans allann. Tölur og aftur tölur. Í sumar lærði hann muninn á oddatölum og sléttum tölum bara fyrir forvitni og ég hef lagt það í vana minn að útskýra fyrir honum þegar hann spyr, hvort sem útskýringin er flókin eða einföld. En þannig vill hann hafa það, það er ekkert ,,af því bara" það er skýring á öllu. Og mjög oft er hægt að tengja hana tölum eða einhverju mynstri og það líkar honum vel. Núna um daginn lærði hann svo út á hvað margföldun gengur og margfaldar eins og herforingi eftir það. Við ætlum að leyfa honum að læra það sem hann vill læra þegar það ber á góma, þannig lærir hann líka mest. Ef hann vill læra margföldun núna þá bara útskýrum við hana núna og hann verður þá bara tilbúin þegar kennarinn hans leggur hana fyrir.
Námsmatið hans í nóvember kom mjög vel út og hann er að standa sig með príði. Hann er líka að læra á gítar. Það gengur nú ekki alveg jafn vel og hann er latur að æfa sig heima. En hann vill halda áfram og finnst gaman í tíma hjá Hafsteini, eini gallinn er að hann heitir Hafsteinn og þá getur hann ómögulega gleymt Hafsteini vini sínum (eins og hann sagði sjálfur).
Hann byrjaði svo að æfa fótbolta í haust með Skallagrími í Borgarnesi. Ég byrjaði á því að keyra hann einann en þetta smitaði út frá sér og núna eru þeir fjórir sem fara saman á æfingar hjá 7. flokki karla í Borgarnesi. Frábært alveg og þeir kepptu á sínu fyrsta móti í desember sem var innanhúss mót þar sem Skallagrímur fór með þrjú lið í þessum flokki sem öll stóðu sig gríðarlega vel. Óskar Óðinn var duglegur á vellinnum og voru foreldrarnir afar stoltir á eftir. Ókunnugt fólk kom meira að segja til okkar og hrósaði okkur fyrir þennan duglega litla pjakk.
Í haust flutti Jakob svo út frá okkur og í eigin íbúð hérna á Hvanneyri með henni Írisi sinni sem byrjaði í skólanum hérna. Við erum náttúrulega himinlifandi yfir því að eiga núna smá pínu fjölskyldu hérna á Hvanneyri.
Sigtryggur hefur unnið gríðarlega mikið í haust líka og ekki náð að taka sér sumarfríið sitt sem hann sleppti í sumar. Þær breytingar urðu svo núna um áramótin að starfið hans var lagt niður og búreksturinn á Hvanneyri gerður að opinberu hlutafélagi. En honum var boðið að vinna áfram við skólann og núna verður hann í kennslu og rannsóknum og því verður hann fljótlega lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Það verður nóg að gera hjá honum, en vonandi verður starfið aðeins fjölskylduvænna og minna um vinnu fram eftir degi á hverjum degi og huganlega eitthvað sumarfí á þessu ári. Ég held áfram að vinna hjá Bændasamtökunum sem fóðurfræðingur þar sem mitt helsta verkefni er innleiðing á nýju samnorrænu fóðurmatskerfi fyrir mjólkurkýr.
Þetta var sem sagt ár útskriftanna, tveir masterar (annar í fóðurfræði jórturdýra og hinn í atferli og velferð búfjár) og einn sem kláraði fyrsta skólastigið eða leikskólann. Vonandi á hann eftir að klára nokkur í viðbót!! Enginn pressa samt...
»
30.12.2009 14:14:40 / Berglind
Örstutt jólablogg. Hvað hefur á daga okkar drifið síðan við sóttum jólatréið!!
Jú skötuveislan var auðvitað á Þorláksmessu, hún lukkaðist rosalega vel. Ég eldaði skötu og saltfisk og svo vorum við með ís í eftirmat. Ís frá Erpstöðum í Dölum, rosalega góður ís þar. Skatan var ljómandi góð, passlega kæst að mínu mati. Svo suðum við bara hangikjötið um kvöldið og á hvarf skötulyktin eins og dögg fyrir sólu. Aðfangadagur var mjög notalegur hjá okkur litlu fjölskyldunni í drullustykkinu. Við dúlluðumst bara saman, keyrðum út kortum og fengum jólasveina í heimsókn. Við elduðum hamborgarahrygg og höfðum með honum ljómandi gott meðlæti. Pakkaflóðið var þokkalegt eins og við var að búast. Óskar Óðinn sá um að deila pökkunum á okkur þar sem hann er nú orðin lesfær á merkimiðan, amk þá sem voru sæmilega skrifaðir. Tengiskrfitin vefst aðeins fyrir manninum ennþá enda bara í fyrsta bekk. Hann fékk helling af flottum gjöfum. Eftir að hann hafði opnað alla pakkana hófst vinnan við að prófa þetta allt saman. Hann byrjað á því að prófa tölvuleikinn og þráðlausu fjarstýringarnar (ég verð að viðurkenna að fjarstýringarnar voru nú pínu fyrir mig líka!!! enda fékk hann aðeins meira frá okkur en bara þær). Eftir þó nokkuð tölvuleikjaspil var hafist handa við legó samansetningar. Þeir feðgar settu saman rosa starwars legó sem hann fékk og entist það fram að háttatíma, eða fram yfir miðnætti.
Ég fékk rosalega flotta kaffikönnu frá þeim feðgum, núna get ég helt mér upp á cupocino í einni svipan, elska það!!!
Við Óskar gáfum Sigtryggi dót í bílskúrinn fína, ýmislegt sem hann vantaði þar inn.
Þetta voru annars bókalausu jólin, eða já okkur fullorðnu amk. En Óskar fékk tvær bækur, Bakkabræður og Stórhættulegu strákabókina. En annars fengum við flottar gjafir eins og venjulega, t.d. húfur, rúmföt, eldhústæki, spegil og fleira.
Jóladagur var tekin með ró, áframhald af legóbyggingum því það voru fleiri legókassar í jólapökkunum. Ég hafði stefnt á jólamessuna á jóladag en fékk karlana mína ekki með mér svo ég ákvað að byggja bara legó með þeim í staðin.
Á annan í jólum fórum við í hesthúsið og Óskar fór aðeins á hestbak á hana Svölu okkar sem ætlar að þjóna hlutverki barnahests í vetur. Svo brunuðum við norður í frekar leiðinlegu ferðaveðri, en komumst á endanum. Mættum beint í fyrsta jólaboðið hjá ömmu og afa í Klappó. 27. des var jólaball í Hlíðarbæ, en systkini mömmu og afkomendur leigðu það undir fjölskyldu jólaball sem heppnaðist rosalega vel. 28.des var svo afmælisveislan stóra þar sem haldið var upp á 6+6+7 ára afmæli. Í ár gerðum við Liverpool köku enda var þetta liverpool afmælið. Drengirnir fengu liverpool könnur, liverpool hettupeysur, liverpool galla (stuttbuxur og bol) og liverpool húfur. En þar að auki hafði Óskar Óðinn fengið liverpool jakka frá okkur Sigtryggi í jólagjöf sem hann hefur helst ekkert farið úr.
En núna erum við komin heim á Hvanneyri aftur, alltaf gott að koma heim!
Í dag ætlum við svo að kaupa okkur flugelda og bíðum spennt eftir áramótagleðinni.
»
21.12.2009 14:52:27 / Berglind
Það er aldeilis farið að syttast í jólin maður lifandi.
Við höfum haft það afskaplega gott í aðventunni, eins og ég lagði upp með. Bakað nokkrar sortir, gert jólanammi, ristað möndlur, föndrað, spilað, brennt ógrinni af kertum og bara haft það rosa rosa gott.
Hólmar bróðir var í heimsókn um helgina með konu, barn og hund. Það var rosa gott að fá þau í heimsókn. Litla skottið mitt hún Hanna Valdís er náttúrulega bara yndisleg og alltaf gaman að hitta hana. Þar er lítil ákveðin, hress og kát skotta á ferð sem brosir með öllu andlitinu. Við skelltum okkur í sund, borðuðum í bakaríinu, spiluðum, bökuðum og höfðum það gott saman.
Við sóttum okkur jólatré í Reykholtsskóg í gær, flott jólatré, blágreni. Það er þónokkuð stórt meira að segja. Hlakka til að koma því fyrir í stofunni minni og skreyta það með öllu fína jólaskrautinu mínu.
En næst á dagskrá er skötuveislan, ég byrjaði á því í fyrra að bjóða fólki í skötu á Þorláksmessu. Það heppnaðist rosalega vel og þess vegna ætla ég að gera það aftur. Hlakka til að hitta vini, borða skötuna og hafa gaman svona rétt áður en jólin renna í hlað. Ég ætla líka að bjóða upp á saltfisk og örugglega smá síld líka. En svo verður ís í eftirmat.
En við ætlum að halda upp á jólin okkar heima, þrjú saman, eins og í fyrra. Það verður reyndar alveg geggjað. Það var svo notarlegt í fyrra að nú fer ég aldrei til baka með það. En við ætlum svo að skreppa aðeins norður á milli jóla og nýárs. Kíkja í jólaboð til ömmu og afa í Klappó, jólaball/boð hjá mömmu fjölskyldu í Hlíðabæ og svo náttúrulega það sem þetta snýst allt um. Afmælisveislan þann 28. des þegar bræður mínir verða sex ára og Óskar Óðinn heldur upp á sitt sjö ára afmæli með þeim.
En áramótin verða svo haldin hátíðlega með góðum mat, sprengjum og látum á Hvanneyri.
Fjör út í gegn.
»
14.12.2009 10:10:26 / Berglind
Þá er desember að verða hálfnaður, þetta er alveg yndislegt. Eftir rétt rúma viku verða jólin komin.
Ég ákvað að þessi desember myndi einkennast af rólegheit, kósýstundum og notalegum jólaanda. Það hefur reyndar verið svolítið mikið að gera í vinnunni undnafarið og ég á þvælingi. Svo ég sá þessa helgi sem var að líða alveg í hillingum. Var löngu búin að ákveða að hún myndi einkennast af undirbúningi jólanna og að vera heima hjá sér í notalegheitum. Og það var sko alveg þannig, ég hætti snemma á föstudaginn í vinnunni og sótti Óskar í skólann. Það var sko ekki hægt að láta greyið labba svo ég fór á bílnum. Það var svo mikið rok að hann hefði fokið út í veður og vind, enda ekki mikil þyngsli til að halda honum niðri. Hann bauð með sér tveim strákum og þeir léku sér góðir fram að kvöldmat. Ég dúllaðist heima, hlustaði á jólalög, föndraði og bakaði eina sort. Laugardagurinn var líka mjög notalegur, Sigtryggur, Jakob og Íris sóttu hesta suður í land því hún Tína var farin að fá hnúska og það var svo mikil rigning að það er ekki gott fyrir hana, sérstaklega ef það myndi kólna. Ég dúllaðist bara heima með strákana, föndraði meira, spilaði með þeim og við smökkuðum smákökurnar. Svo gerði ég meira jólalegt heima og skrifaði nokkur jólakort. Á sunnudag hætti loksins að rigna svo það var hægt að fara út. En ég bakaði líka meira og við máluðum piparkökur. Svo eldaði ég Byr Númason í kvöldmat, en við vorum að prófa fyrsta bitann af honum. Við ákváðum að grilla því það var svo yndislegt veður. Ég var bara með ennisljósið svo ég sæi hvað ég var að gera. Jakob var diggur aðstoðarmaður úti og Íris inni. Fínt að hafa svona aðstoðarkokka maður lifandi. En það er skemmst frá því að segja að Byr bráðnaði í munninum á okkur, mikið rosalega var þetta góður biti. Vá maður lifandi. Við átum öll yfir okkur.
En í tilefni þess að þetta var kósý helgi og notalegheit í fyrirrúmi, ákváðum við að kveikja upp í kamínunni eftir matinn, enda veðrið til þess maður lifandi. Út á pall með kaffi, kakó og smákökur og þar höfðum við það gott fram á kvöld.
Yndislegt líf...
Gróft plan fyrir vikuna er að :
- klára jólakortin (kann ekkert á þetta, er venjulega búin með jólakortin í byrjun nóv... en það skiptir engu!! ekkert stress)
- setja saman piparkökuhúsið
- kósý kvöld með Sollu minni
- skreyta meira
- baka pínu meira
- föndra pínu meira
- og næstu helgi förum við og sækjum okkur jólatré
Gott plan, bara eitthvað skemmtilegt á listanum. Geggjað
Njótið desembermánaðar og gangið um með glott á vör.
»
Síður:
1 2 3 ...
24